Kippi Kaninus - Huggun

Kippi Kaninus - Huggun
Kitchen Motors/Edda
59:13 mín.


 

 

 

Hvað?
Kippi Kaninus er listamannsnafn Guðmundar Vignis Karlssonar sem vakti mikla athygli fyrir fyrstu plötuna sína "Í síðdegiskaffinu sígild hljómlist" sem hann fullvann og framleiddi sjálfur og seldi í 12 tónum. Huggun er hans fyrsta plata sem fær einhverja dreifingu að ráði. Á henni eru bæði lög af fyrri plötunni og nýtt efni.

Fyrir hvern?
Tónlist Kippa Kaninus er raftónlist án söngs og ætti að falla í kramið hjá þeim sem hafa verið að hlusta á múm, Trabant og afurðir Morr-útgáfunnar. Það er mjög mikil gróska í þessari tegund tónlistar á Íslandi í dag en Kippi er að öðrum ólöstuðum efnilegasti nýliðinn sem maður hefur heyrt í á árinu.

Skemmtilegar staðreyndir
Kippi Kaninus þykir uppátækjasamur og skemmtilegur á tónleikum. Hann er þessa dagana að hita upp fyrir múm á tónleikaferð þeirra um Bandaríkin og Kanada. Það verður spennandi að sjá hvernig viðtökur hann fær á jafnmætum tónleikastöðum og Knitting Factory í New York en þar verða tónleikar 26. júlí nk.

Niðurstaða
Eins og fyrri platan er þetta óvenjufjölbreytt og heilsteypt verk. Kippi er í takt við sumt af því sem evrópskir raftónlistarmenn hafa fengist við undanfarið en hann kemur líka með sitt innlegg. Hljóðheimurinn er fjölbreyttur og undir skröltandi töktunum leynast ljúfar melódíur, áhrifamiklar stemmningar og lúmskur húmor.
trausti júlíusson